Hvað er nýtt í NVDA %!includeconf: ../changes.t2tconf = 2013.1 = Það sem ber hæst í þessari útgáfu er meðal annars eðlislægara og samhæfðara snið á fartölvu lyklaborðs haminum; grunn stuðningur við Microsoft Powerpoint; stuðningur við lengri lýsingar á efni í vöfrum; og stuðningur við inntak punktaleturs í punktaletursskjáum sem eru með innbyggt punktaleturs lyklaborð == Mikilvægt == == Nýtt útlitssnið á fartölvu lyklaborðs ham == Fartölvu lyklaborðssniðið hefur verið endurhannað frá grunni til að gera það eðlislægara í notkun. Nýja sniðið notar örvalyklana í samstarfi með NVDA lyklinum og öðrum aðgerðalyklum til að framkvæma vissar skipanir. Vinsamlegast hafið í huga eftirfarandi breytingar á eftirfarandi skipunum: || Nafn | Lykill | | Lesa allt | NVDA+a | | Lesa núverandi línu | NVDA+l | | Lesa valinn texta | NVDA+shift+s | | Tilkynna stöðurein | NVDA+shift+end | Til viðbótar við þetta þá hafa breytingar einnig verið gerðar á hlutvöfrun, texta skoðun, músarsmell og talgervla stillingum. Vinsamlegast lesið [Commands Quick Reference keyCommands.html] skjalið til að fá upplýsingar um nýju flýtilyklana. == Nýjir Eiginleikar == - Grunn stuðningur við endurskoðun og lestur á Microsoft Powerpoint glærum. (#501) - Grunn stuðningur við endurskoðun og lestur skilaboða í Lotus Notes 8.5. (#543) - Stuðningur við sjálfvirka skiptingu á tungumálum þegar unnið er í Microsoft Word. (#2047) - Þegar unnið er í vafraham með MSHTML (sb. Internet Explorer) og Gecko (sb. Firefox), þá mun tilvist lengri lýsinga nú vera tilkynnt. Einnig er hægt að opna lengri lýsinguna í sér glugga með því að styðja á NVDA+d. (#809) - Tilkynningar í Internet Explorer 9 og nýrri útgáfum eru nú lesnar (sb. niðurhal á skrám og hindrun á birtingu efnis, eins og sprettiglugga). (#2343) - Sjálfvirk tilkynning á fyrirsögnum raða og dálka er nú studd þegar unnið er í vafraham með skjöl í Internet Explorer eða öðrum MSHTML stjórntækjum. (#778) - Nýtt tungumál: Aragóníska - Nýjar blindraleturs töflur: Danska stig 2, Kóreska stig 1. (#2737) - Stuðningur fyrir blindraletursskjái sem tengjast með Blátönn á tölvu sem keyrir Bluetooth Stack for Windows by Toshiba. (#2419) - Stuðningur við val á tengjum þegar unnið er með Freedom Scientific skjái (Sjálfvirkt, USB eða Blátönn). - Stuðningur við BrailleNote seríuna af notetakers frá Humanware, þegar þeir eru notaðir sem blindraletursskjáir fyrir skjálesarann. (#2012) - Stuðningur við eldri módel af Papenmeier BRAILLEX blindraletursskjáum. (#2679) - Stuðningur við innslátt tölvu-blindraleturs á blindraletursskjám sem innihalda innbyggð lyklaborð. (#808) - Nýjar lyklaborðs stillingar sem gera kleift að velja um hvort NVDA eigi að trufla lestur með innslegnum bókstöfum eða þegar stutt er á færslulykilinn. (#698) - Stuðningur við nokkra vafra sem byggja á Google Chrome: Rockmelt, Blackhawk, Comodo Dragon og SRWare Iron. (#2236, #2813, #2814, #2815) == Breytingar == - Uppfærsla á liblouis blindraleturs þýðanda upp í 2.5.2. (#2737) - Fartölvu lyklaborðs viðmótið hefur verið endurhannað til að gera það eðlislægara í notkun. (#804) == Lagaðar Villur == - Flýtilyklarnir til að fara í fyrri eða næstu skilstiku í Vafraham virka núna í Internet Explorer og öðrum MSHTML stjórntækjum. (#2781) - Ef NVDA skiptir aftur yfir í eSpeak eða Ekkert tal vegna þess að talgervillinn sem átti að nota ræsti sér ekki, þá er stillingunni nú breytt þannig að þegar NVDA er ræst aftur þá mun forritið á nýjan leik reyna að ræsa sama talgervli. (#2589) - Ef NVDA endurstillist yfir í stillinguna ekkert punktaletur, sökum þess að punktaletursskjárinn sem er í notkun virkar ekki þegar NVDA ræsist, þá er ekki lengur sjálfgefin stilling, ekkert punktaletur. Sem þýðir að í næsta skipti sem NVDA ræsist þá mun forritið aftur reyna að keyra upp rekilinn fyrir punktaletursskjáinn. (#2264) - Þegar í Vafraham í Mozilla Firefox forritum, þá munu uppfærslur á töflum nú skilgreinast rétt. Sem dæmi, í uppfærðum sellum, þá munu hnitmið raða og dálka nú vera rétt og vöfrun virkar sem skildi. (#2784) - Þegar unnið er með Vafraham, í vöfrum, þá eru nú smellanlegir-grafískir/mynd hlutir nú skilgreindir rétt. (#2838) - Eldri og nýrri útgáfur af SecureCRT eru nú studdar. (#2800) - Fyrir inntaks aðferðir eins og Easy Dots IME í XP, þá er lestrarstrengurinn nú rétt tilkynntur. - Uppástungulistinn fyrir Kínverskt Einfaldað Microsoft Pinyin inntak í Windows 7 er nú lesinn rétt þegar skipt er milli síða með ör til hægri og vinstri, og einnig þegar notaður er Heim lykillinn. - Þegar sérsniðin tákna framburður er vistaður, þá er þróaði "geyma" reiturinn ekki lengur fjarlægður. (#2852) - Þegar sjálfvirk uppfærslu leitun er afvirkjuð, þá þarf NVDA ekki lengur að vera endurræst til að breytingin taki gildi. - Engin villa kemur upp í ræsingu NVDA lengur, þegar ekki er hægt að fjarlægja viðbót vegna þess að mappan sem hún er í er þegar í notkun af öðru forriti. (#2860) - Flipa í valkosta skilaboðaglugga DropBox forritsins er nú hægt að skoða með Flatri skoðun. - Ef inntaks tungumáli er breytt í annað en sjálfgefið, þá mun NVDA nú greina lyklainnslátt rétt fyrir skipanir og aðra inntaks hjálp. - Fyrir tungumál eins og Þýsku þar sem + (plús) merkið er einn lykill á lyklaborðinu, þá er nú hægt að binda skipanir við merkið með því að nota orðið "plus". (#2898) - Í Internet Explorer og öðrum MSHTML stjórntækjum þá eru tilvitnanir núna tilkynntar þar sem við á. (#2888) - Reklarnir fyrir Humanware Brailliant BI/B seríuna af blindraletursskjám er nú hægt að velja þegar skjárinn er tengdur með Blátönn, þrátt fyrir að hann hafi aldrei verið tengdur með USB. - Síun á atriðum í Vafrahams Eigindalistanum með stórum stöfum virkar nú sem skildi, líkt og síun á smáum bókstöfum. (#2951) - Í Mozilla vöfrum þá er nú hægt að nota Vafraham þegar Flash efni er í fókus. (#2546) - Þegar notaðar eru punktaleturs töflur með styttingum og framkvæmd er skipun um að lengja orðið sem er valið í tölvu-punktaletur, þá mun nú punktaleturs bendillinn vera staðsettur rétt, þegar hann er fyrir aftan orð sem er táknað með fleiri punktaleturs sellum (sd. hástafamerki, bókstafa merki, númera merki, osfrv.) (#2947) - Textaval er nú birt rétt á punktaletursskjám í forritum eins og Microsoft Word 2003 eða Internet Explorer stjórntækjum þar sem hægt er að skrifa. - Nú er aftur mögulegt að velja texta frá hægri til vinstri í Microsoft Word þegar punktaletur er virkt. - NVDA tilkynnir nú multibyte stafi rétt í Scintilla ritunar stjórntækjum þegar þeir eru lesnir eða þeim eytt. (#2855) - Uppsetning á NVDA mun nú virka þrátt fyrir að slóðin að notenda prófílnum innihalda tiltekna multibyte bókstafi. (#2729) - Tilkynningar á hópum fyrir Listaskoðunar stjórntækin (SysListview32) í 64 bita forritum framkallar ekki lengur villu. - Í vafraham í Mozilla forritum, þá er texta efni núna birt rétt á vefsíðum og ekki lengur birt sem endurskoðanlegt efni, eins og stundum kom fyrir. (#2959) - Í IBM Lotus Symphony og OpenOffice þá mun skoðunarbendillinn færast sjálfkrafa með ritbendlinum, ef við á. - Adobe Flash efni er núna aðgengilegt í Internet Explorer í Windows 8. (#2454) - Lagaður stuðningur Blátannar stuðningur við Papenmeier Braillex Trio (#2995) - Löguð villa þar sem ekki var hægt að nota ákveðnar Microsoft Speech API útgáfa 5 raddir, eins og Koba Speech raddir. (#2629)